
Cantores Islandiae
Cantores Islandiae flutti Maríumessu (La messe de nostre dame) eftir miðaldatónskáldið Guillaume de Machaut ásamt Lilju Dögg Gunnarsdóttur mezzósópran og hljóðfæraleikurum á tónleikum í águst 2023 og á tvennum tónleikum í mars 2024.
Kórinn tók þátt í flutningi á Maríuvesper eftir Claudio Monteverdi í samstarfi við Listvinafélagið í Reykjavík og kammerkórinn Schola Cantorum undir stjórn Bjarna Frímanns Bjarnasona í Hörpu í desember 2023.
Kórinn hefur á liðnum árum haldið tónleika
í samstarfi við Eyþór Inga Jónsson, organista í Akureyrarkirkju, og nokkra tónleika í samstarfi við Björn Steinar Sólbergsson, organista í Hallgrímskirkju.
Cantores Islandiae komu fram á tónleikum tónlistarhópsins Umbru á Kirkjulistahátíð í Hallgrímskirkju árið 2019. Í kjölfarið sungu þeir með Umbru á plötu þeirra Llibre Vermell: Maríusöngvar frá miðöldum sem kom út sama ár.
Kórinn kom fram á Degi kirkjutónlistarinnar í Hjallakirkju í Kópavogi árið 2019.
Árið 2024 vann kórinn verkefni fyrir Árnastofnun í tengslum við opnun Eddu, hús íslenskunnar.

_edited.jpg)
Cantores Islandiae
Cantores Islandiae flutti Maríumessu
(La messe de nostre dame) eftir miðaldatónskáldið Guillaume de Machaut ásamt Lilju Dögg Gunnarsdóttur mezzósópran og hljóðfæraleikurum á tónleikum í águst 2023 og á tvennum tónleikum í mars 2024.
Kórinn tók þátt í flutningi á Maríuvesper eftir Claudio Monteverdi í samstarfi við Listvinafélagið í Reykjavík og kammerkórinn Schola Cantorum undir stjórn Bjarna Frímanns Bjarnasona í Hörpu í desember 2023.
Kórinn hefur á liðnum árum haldið tónleika
í samstarfi við Eyþór Inga Jónsson, organista í Akureyrarkirkju, og nokkra tónleika í samstarfi við
Björn Steinar Sólbergsson, organista í Hallgrímskirkju.
Cantores Islandiae komu fram á tónleikum tónlistarhópsins Umbru á Kirkjulistahátíð í Hallgrímskirkju árið 2019. Í kjölfarið sungu þeir með Umbru á plötu þeirra Llibre Vermell: Maríusöngvar frá miðöldum sem kom út sama ár.
Kórinn kom fram á Degi kirkjutónlistarinnar í Hjallakirkju í Kópavogi árið 2019.
Árið 2024 vann kórinn verkefni fyrir Árnastofnun í tengslum við opnun Eddu, hús íslenskunnar.
Cantores Islandiae
Introitus: Gaudeamus omnes - Assumptione
Hljóðritun af tónleikum í Skálholtsdómkirkju 11. mars 2024.
Flytjendur: Cantores Islandiae
Stjórnandi: Ágúst Ingi Ágústsson
Introitus:
Introitus eða inngöngusöngur fyrir himnaför Maríu guðsmóður (assumptione beatae Mariae virginae) sem haldinn er hátíðlegur 15. ágúst.
Introitus: "Introitus eða inngöngusöngur fyrir himnaför Maríu guðsmóður (assumptione beatae Mariae virginae) sem haldinn er hátíðlegur 15. ágúst."
Cantores Islandiae
Alleluia: Assumpta est Maria
Hljóðritun af tónleikum í Skálholtsdómkirkju 11. mars 2024.
Flytjendur: Cantores Islandiae
Stjórnandi: Ágúst Ingi Ágústsson
Alleluia:
Alleluia eða lofgjörðarvers fyrir himnaför Maríu guðsmóður (assumptione beatae Mariae virginae) sem haldinn er hátíðlegur 15. ágúst.
Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit, sed do eiusmod tempor incididunt ut labore et dolore magna aliqua. Ut enim ad minim veniam, quis nostrud exercitation ullamco laboris nisi ut aliquip ex ea commodo consequat. Duis aute irure dolor in reprehenderit in voluptate velit esse cillum dolore eu fugiat nulla pariatur. Excepteur sint occaecat cupidatat non proident, sunt in culpa qui officia deserunt mollit anim id est laborum.
Myndagallerí
Ágúst Ingi Ágústsson
stjórnandi
Ágúst Ingi Ágústsson lauk kantorsprófi frá Tónskóla þjóðkirkjunnar árið 1998 þar sem Hörður Áskelsson var aðalkennari hans.
Árið 2008 lauk hann einleiksáfanga á orgel við sama skóla, einnig undir handleiðslu Harðar.
Árið 2024 útskrifaðist Ágúst af kirkjutónlistarbraut við Listaháskóla Íslands þar sem hann lærði m.a. orgelleik hjá Eyþóri Inga Jónssyni og kórstjórn hjá Magnúsi Ragnarssyni.
Ágúst hefur stjórnað sönghópnum Cantores Islandiae frá stofnun hópsins árið 2018. Hann starfaði sem organisti hjá kaþólsku kirkjunni í Hafnarfirði árin 1993–2000 og var stjórnandi gregorskórsins Cantores Iutlandiae í Danmörku árin 2011–2018.

Cantores Islandiae
Kyrie og Gloria úr Messe de Nostre Dame eftir Guillaume de Machaut
Hljóð og mynd
Hljóðritun af tónleikum í Skálholtsdómkirkju 11. mars 2024.
Flytjendur: Cantores Islandiae Lilja Dögg Gunnarsdóttir, mezzósópran, Helga Aðalheiður Jónsdóttir, blokkflautur, Hildigunnur Halldórsdóttir, miðaldafiðla, Ingibjörg Azima Guðlaugsdóttir, sackbut, Jens Bauer, sackbut.
Maríumessa (fr. Messe de Nostre Dame) eftir franska miðaldatónskáldið Guillaume de Machaut er eitt helsta meistaraverk miðaldatónlistar og framúrskarandi dæmi um sérstæða fjölröddun sinnar tíðar, sem er afar ólík þeirri fjölröddun sem síðar þróaðist í vestrænni tónlist. Messan markaði þáttaskil í vestrænni tónlistarsögu því að hún er fyrsta heildstæða messa sögunnar eftir nafngreint tónskáld. Áður sinntu menn því ekki sérstaklega að semja eða setja saman heilar messur sem væru verk eins tónskálds; messuþættir voru þess í stað gripnir héðan og þaðan. Hrynur og hljómar í messunni orka sérkennilega á eyra nútímamanns og færa hann í horfinn heim og hálfgleymdan. Cantores Islandiae hefur í þrígang flutt messu Machaut í fullri lengd, í Kristskirkju í Landakoti í ágúst 2023 og í Akureyrarkirkju og Skálholtsdómkirkju í mars 2024.